Allt sem þú þarft til að skilja vefinn þinn
Frá daglegri samantekt á íslensku til hitakorta og hraðamælinga. Engar vafrakökur og tilbúið á tveimur mínútum.
Innsýn sem segir þér hvað skiptir máli
Stats les gögnin fyrir þig og dregur fram það sem breyttist.
AI innsýn á íslensku
Gervigreind fer yfir gögnin og skrifar stutta samantekt á mannamáli: hvað breyttist, hvers vegna og hvað er skynsamlegt að gera næst.
Helstu breytingar
Heimildir, síður og lönd sem hækkuðu eða lækkuðu mest frá fyrra tímabili. Smelltu á línu til að sía mælaborðið.
Samanburður í hverri línu
Hver heimild, síða og land sýnir prósentubreytingu frá fyrra tímabili, svo þú sérð strax hvað er á uppleið.
Vikuleg skýrsla
Samantekt vikunnar í pósthólfið og skýrsla sem þú getur prentað eða sent áfram.
Viðvaranir
Póstur þegar umferð fellur eða rýkur upp umfram mörkin sem þú velur. Webhooks senda sömu boð í ykkar eigin kerfi.
Helstu breytingarmiðað við fyrri 30 daga
AI innsýn sem talar þitt tungumál
Gervigreindin okkar les gögnin þín og skilar skýrri innsýn á íslensku. Enginn flókinn skilningur á tölunum — bara gagnlegar upplýsingar sem þú getur nýtt strax.
Hvernig virkar það?
Söfnum gögnum
Stats safnar upplýsingum um gesti, síður, uppruna og hegðun — allt án þess að nota kökur sem krefjast samþykkis.
AI greining
Gervigreindin okkar fer yfir gögnin daglega og finnur mynstur, breytingar og áhugaverðar upplýsingar.
Innsýn á íslensku
Þú færð skýra, gagnlega innsýn á íslensku sem hjálpar þér að taka betri ákvarðanir um vefsíðuna þína.
Hvað færðu?
- Daglegar uppfærslur með nýjustu innsýn
- Viðvaranir um óvenjulegar breytingar
- Greining á árangri herferða og auglýsinga
- Tillögur um hvað mætti bæta
- Samanburð við fyrri tímabil
Dæmi um AI innsýn
Umferð jókst
Í dag 09:00
Heimsóknir jukust um 34% frá síðustu viku. Aukning kom aðallega frá Google leit og beinum heimsóknum. Þetta er besta vikan síðan í nóvember.
AI umferð greind
Í gær 14:30
24 gestir komu frá ChatGPT í dag — það er 3x meira en meðaltal. Flestir leituðu að vörum tengdum ferðaþjónustu. Íhugaðu að bæta efni sem svarar algengum spurningum.
Athugaðu þessa síðu
Í gær 10:15
Síðan /vara/tilbod hefur óvenjulega hátt hopphlutfall (78%). Flestir yfirgefa síðuna innan 8 sekúndna. Þetta gæti bent til tæknilegra vandamála eða rangar væntingar frá leitarorðum.
Ný markaðssvæði
Í fyrradag
Umferð frá Noregi jókst um 156% þessa viku. Þetta gæti verið tækifæri til að bæta við innihaldi á norsku eða miða auglýsingar að norskum markaði.
Herferðagreining
Í dag 11:00
Facebook herferðin 'Sumarútsala' skilar 45% fleiri gestum en Google Ads herferðin, en Google gestir dvelja 2x lengur. Íhugaðu að bæta landing page fyrir Facebook umferð.
30 dagar af Vexti · Ekkert kort · Engin binding
Sjáðu hvaðan gestirnir koma
Hver heimild, rás og herferð mæld og borin saman við fyrra tímabil.
Rásir
Heimildir flokkast sjálfkrafa í leitarvélar, samfélagsmiðla, tölvupóst, auglýsingar, gervigreind og fleira.
Umferð frá gervigreind
ChatGPT, Claude, Perplexity og aðrar gervigreindir greinast sérstaklega, svo þú sérð hvort efnið þitt ratar í svörin þeirra.
Herferðir og UTM
Sjáðu hvaða auglýsingar og fréttabréf skila gestum. Innbyggður hlekkjasmiður og AI greining á hverja herferð.
Stuttir tenglar
stats.is/go/… tenglar fyrir prent, QR-kóða og samfélagsmiðla sem telja hvern smell.
Margar endingar
Sami vefur á .is, .com og .dk mældur með einum kóða. Síaðu eftir léni þegar þú þarft.
Mest frá Google
Mest frá Facebook
Mest frá Mailchimp
Mest frá ChatGPT
Veistu hvaða auglýsingar skila árangri?
Þegar þú deilir hlekkjum á samfélagsmiðlum, í tölvupósti eða auglýsingum getur þú bætt við sérstökum merkjum sem segja þér nákvæmlega hvaðan fólk kemur. Þannig sérðu hvað virkar — og hvað ekki.
Búðu til merktan hlekk
Notaðu innbyggða hlekkjasmíðinn okkar til að bæta merkjum við hvaða hlekk sem er — ekkert flókið.
Deildu hlekknum
Settu merkta hlekkinn í Facebook auglýsingu, Instagram póst, fréttabréf eða hvar sem er.
Sjáðu hvað virkar
Berðu saman allar herferðir, sjáðu þróun yfir tíma og finndu hvað skilar bestum árangri.
Öflug greiningartól fyrir markaðsfólk
AI herferðagreiningNýtt
Gervigreind greinir herferðirnar þínar og gefur tillögur um hvað virkar best og hvað má bæta.
Samanburður við fyrra tímabil
Sjáðu hvort herferðir þínar eru að batna eða versna. Prósentubreytingar sýna þér þróunina.
Þróunargröf
Línurit sýna árangur herferða yfir tíma. Berðu saman margar herferðir á sama grafi.
Bestu herferðirnar
Fáðu yfirsýn yfir hvaða herferðir skila best. Raðað eftir fjölda gesta og árangri.
Innbyggður hlekkjasmíður
Búðu til merkta hlekki með nokkrum smellum. Flýtisniðmát fyrir Facebook, Instagram og fleira.
Tækjasundurliðun
Sjáðu hvort herferðir ná betur til fólks á símum, tölvum eða spjaldtölvum.
Herferðayfirlit
Síðustu 30 dagar8
Herferðir
2.847
+23%Gestir
34%
-5%Fráhlaup
Sumarútsala
847
+32%
Nýtt vöruútboð
Google Ads
623
+18%
Fréttabréf
Tölvupóstur
412
-8%
UTM Hlekkjasmíður
Innbyggður í kerfið
Tilbúinn hlekkur:
vefsida.is/tilbod?utm_source=facebook&utm_campaign=sumar2026Hvað gestir gera á vefnum
Smellir, skrun, leiðir og markmið, í rauntíma og yfir tíma.
Rauntími
Hverjir eru á vefnum núna, á hvaða síðum og hvaðan þeir komu.
Hitakort
Smellir og skrun teiknast ofan á síðuna sjálfa, sér fyrir tölvur og síma.
Trektir
Mældu leiðina frá fyrstu síðu að markmiði og sjáðu í hvaða skrefi fólk hættir við.
Atburðir og markmið
Útgangstenglar, niðurhal og form mælast sjálfkrafa. Búðu til eigin atburði og merktu markmið.
Síður og dvöl
Vinsælustu síðurnar, hversu lengi fólk staldrar við og hversu langt það skrunar.
Vistuð sjónarhorn
Vistaðu síur og tímabil sem þú skoðar oft og opnaðu þau aftur með einum smelli.
Fylgstu með gestum í rauntíma
Sjáðu hversu margir eru á síðunni þinni akkúrat núna. Fáðu tilkynningar þegar umferð eykst og fylgstu með hverri heimsókn á meðan hún gerist.
- Lifandi teljarinn uppfærist sjálfkrafa
- Sjáðu hvaða síður gestir skoða
- Fylgstu með frá hvaða landi þeir koma
- Fáðu tilkynningar um mikla umferð
Rauntíma
Gestir á síðunni
Sjáðu hvar fólk smellir og skrunar
Hitakortin lúta klikk og skrun yfir síðuna. Aðeins samtölur á rist — engin vafrakaka, enginn samþykkisborði.
Klikkort
Heitir punktar festir við hnappana sem smellt var á, ofan á skjámynd eða beint á vefnum þínum.
Skrunkort
Grænt þar sem flestir sjá síðuna, rautt þar sem nánast enginn kemst.
Ekkert samþykki
Aðeins staðsetning og síðueining, aldrei auðkenni. GDPR án cookie-borða.
Aðeins samtölur. Ekkert um einstaklinga.
Forsíða
Tölva · síðustu 7 daga
Hverjir gestirnir eru
Staðsetning niður á sveitarfélag, lönd, tæki og vafrar.
Sveitarfélög
Íslensk umferð greind niður á sveitarfélög, með skjaldarmerkjum og korti.
Heimskort
Lönd og borgir á gagnvirku korti.
Tæki og vafrar
Tölvur, símar og spjaldtölvur, ásamt vöfrum gestanna.
Sjáðu hvaðan gestir koma
Eina vefgreiningarkerfið sem greinir umferð niður á sveitarfélög með íslenskum staðanöfnum og skjaldarmerkjum.
Stærstu sveitarfélögin
Reykjavík
264
69.5%
Kópavogur
27
7.1%
Hafnarfjörður
23
6.1%
Reykjanesbær
1
0.3%
Garðabær
5
1.4%
Akureyri
17
4.5%
Heimskort
Umferð eftir löndum
10 lönd
8.702 gestir
Ísland
52%
Bandaríkin
14%
Bretland
10%
Sjáðu hvaðan gestir koma á heimsvísu
Lifandi heimskort sem sýnir nákvæmlega hvaðan gestir þínir koma. Sjáðu dreifingu eftir löndum og fylgstu með alþjóðlegri umferð á auðveldan hátt.
- Gagnvirkt kort með zoom og pan
- Litakóðaðir punktar eftir umferðarmagni
- Fánaeiningar og landsheiti á íslensku
- Hlutfall umferðar eftir hverju landi
Hraður vefur án brotinna hlekkja
Mælingar frá raunverulegum gestum sýna hvar vefurinn er hægur og hvaða síður vantar.
Hraði síðunnar
Core Web Vitals (LCP, INP og CLS) mælast hjá raunverulegum gestum. Sjáðu hvaða síður eru hægar og hvort vandinn er í símum eða tölvum.
Brotnir hlekkir
Síður sem skila 404 eru taldar og þú sérð hvaðan gestir komu á þær, svo þú veist hvaða hlekk á að laga.
Byggt fyrir vefstofur og teymi
Mörg lén, aðgangur fyrir viðskiptavini og skýrslur í ykkar nafni.
Mörg lén, einn aðgangur
Skiptu á milli léna með leit og hafðu uppáhaldslénin alltaf við höndina.
Yfirlit yfir öll lén
Umferð og breyting á hverju léni á einni síðu. Lén sem hafa þagnað eða fallið mikið eru merkt sérstaklega.
Vikupóstur fyrir öll lén
Einn póstur á viku með stöðunni á öllum lénunum ykkar.
Teymi
Bjóddu samstarfsfólki með eigin aðgang. Enginn þarf að deila lykilorði.
Aðgangur viðskiptavina
Viðskiptavinur fær aðgang að sínu léni og sér ekkert annað.
Í ykkar nafni
Merki stofunnar á skýrslum og póstum sem fara til viðskiptavina.
API
Sæktu tölfræðina í ykkar eigin kerfi og mælaborð með API-lykli.
Opinber tölfræði
Deildu tölfræðisíðu eða media kit með auglýsendum og samstarfsaðilum.
Öll lén
Flettingar síðustu 30 daga
- kakaffihusid.is12.480+18%
- hohotelvik.is8.210+4%
- bobokhald.isUmferð féll um 52%3.120−52%
- nynyrvefur.isEngin gögn í 4 daga0
Sýndu árangur þinn með staðfestum tölum
Veittu auglýsendum beinan aðgang að staðfestum gögnum. Tölfræði frá óháðum aðila eykur traust og auðveldar þér að selja auglýsingar.
- Opinber slóð til að deila (t.d. stats.is/public/vefsidan)
- Veldu hvaða tölur birtast — gestir, síðuskoðanir, lönd
- Sveitarfélagsgreining með merkjum
- Innfellanlegar græjur fyrir vefsíðuna þína
- „Staðfest af Stats.is“ merki fyrir trúverðugleika
Vefsíðan.is
vefsidan.is
24.847
Síðustu 30 dagar
89.234
Síðustu 30 dagar
Reykjavík
68%
Kópavogur
8%
Akureyri
5%
Deilanleg slóð
Fyrir auglýsendur
Embed kóði
3 stílar
Fullkomið fyrir
Fréttamiðlar
Sýndu lesendum auglýsenda umfang þitt
Bloggara
Staðfestu áhrif þín fyrir samstarfsaðila
Netverslanir
Sýndu vörumerkjum umferð þína
Vefþjónustur
Byggðu traust með opinberum tölum
Persónuvernd og einföld uppsetning
Engar vafrakökur, enginn cookie-borði og ein lína af kóða.
Engar vafrakökur
Ekkert er vistað í vafra gesta, svo þú þarft engan cookie-borða og mælir alla umferð.
Létt skrá
Mælikóðinn er örfá kílóbæti og hleðst eftir að síðan er komin upp.
Uppsett á tveimur mínútum
Ein lína af kóða eða WordPress-viðbót. Gögnin byrja að berast strax.
Virkar með öllum vefsíðum
Sama hvaða tækni þú notar — Stats virkar alls staðar. Einn kóðabútur og þú ert kominn.
WordPress plugin
NÝTTSettu upp Stats á WordPress síðunni þinni með nokkrum smellum. Engin kóðun þörf — bara settu upp plugin og límdu Site ID.
Virkar líka með öllum öðrum kerfum
...og allar aðrar vefsíður með HTML stuðningi