Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita áður en þú byrjar.
Almennt
Hvað er Stats og hvernig virkar það?
Stats er einföld vefgreining fyrir íslensk fyrirtæki. Hún sýnir hvað er að gerast á vefnum, útskýrir breytingar á mannamáli og bendir á hvað þú getur gert næst. Þú setur eina skrá á vefinn og gögnin byrja að safnast.
Hvernig er Stats frábrugðið Google Analytics?
Stats er byggt fyrir eiganda fyrirtækis sem vill skilja vefinn án flókinna mælaborða. Þú þarft ekki að kunna GA4. Þú sérð hvað breyttist, hvaðan umferð kemur og hvað er skynsamlegt að skoða næst.
Hvað er AI innsýn og hvernig hjálpar það mér?
AI-innsýn er texti á íslensku sem les raunveruleg gögn á vefnum þínum. Dæmi: „Umferð jókst um 24% þessa viku. Stærsti hluti aukningarinnar kom frá Instagram herferðinni.“ Innsýnin er ekki ágiskun — hún byggir á tölunum sem Stats safnar.
Fylgist Stats með umferð frá ChatGPT og öðrum AI leitarvélum?
Já. Stats sýnir umferð frá þjónustum eins og ChatGPT, Claude, Perplexity og Gemini þegar vafrinn sendir slíka tilvísun. Þú sérð hvaða síður þær benda á og hvernig sú umferð hegðar sér miðað við aðra uppruna.
Hvernig virkar sveitarfélagsgreiningin?
Stats greinir íslenska umferð niður á sveitarfélög. Landshluti er leiddur af IP-tölu sem er ekki vistuð. Niðurstöðurnar birtast með íslenskum staðanöfnum og skjaldarmerkjum.
Get ég notað Stats með Google Analytics?
Já. Stats og Google Analytics geta verið á sama vef. Það hentar vel á meðan þú berð tölurnar saman.
Persónuvernd og uppsetning
Er Stats GDPR samhæft og þarf ég cookie borða?
Stats notar engar vafrakökur sem krefjast samþykkis, svo þú þarft almennt ekki cookie-borða vegna Stats. IP-tala er notuð tímabundið til að greina landshluta og telja gesti sama daginn — hún er ekki vistuð. Nánar í persónuverndarstefnunni.
Hversu erfitt er að setja upp Stats?
Uppsetningin tekur innan við 2 mínútur. Fyrir WordPress er til ókeypis plugin. Fyrir aðrar síður afritar þú einn stuttan kóðabút. Ef þú þarft aðstoð, setjum við upp Stats fyrir þig ókeypis.
Hægir Stats á vefsíðunni minni?
Nei. Mælingarskráin er um 7 KB þjöppuð, margfalt minni en Google Analytics, og hleðst ósamstillt (async) svo hún tefur ekki hleðslu síðunnar.
Hvernig færi ég úr GA4?
Settu eina Stats-skrá á vefinn. Þú getur látið bæði kerfin keyra saman á meðan þú venst mælaborðinu og tekið hitt niður þegar þú ert sáttur.
Verð og greiðslur
Hvað kostar Stats og er til ókeypis prufutími?
Ókeypis kostar 0 kr.: 1 vefur, 5.000 flettingar á mánuði og 90 daga saga. Fyrirtæki er 3.900 kr., Vöxtur 7.900 kr. og Vefstofa 19.900 kr. á mánuði, án VSK. Nýir reikningar fá 30 daga af Vexti án korts. Enterprise er sérsamningur frá 79.900 kr. á mánuði.
Er Stats virkilega ókeypis?
Já. Ókeypis pakkinn kostar 0 kr. og krefst ekki greiðslukorts. Þú færð 1 vef, 5.000 flettingar á mánuði og 90 daga sögu. Nýr reikningur byrjar á 30 daga prufu á Vexti.
Hvað gerist eftir 30 daga prufuna?
Ef þú kaupir ekki færist reikningurinn sjálfkrafa á Ókeypis. Mæling heldur áfram innan marka þess pakka. Þú getur valið Fyrirtæki, Vöxt eða Vefstofu hvenær sem er.
Þarf ég kreditkort?
Nei. Hvorki Ókeypis pakkinn né 30 daga prufan biðja um kort. Kort eða reikningur kemur aðeins þegar þú velur greidda áskrift.
Get ég farið aftur í Ókeypis?
Eftir prufuna, ef þú kaupir ekki, heldurðu áfram á Ókeypis. Greidd áskrift sem er sagt upp lokast við lok tímabilsins. Hafðu samband ef þú vilt færa greiddan reikning yfir á Ókeypis.
Hvað telst sem fletting?
Fletting er þegar Stats skráir að síða hafi verið opnuð. Sami gestur getur því talið fleiri en eina flettingu ef hann skoðar fleiri síður.
Hvað gerist ef ég fer yfir flettingafjölda?
Á Ókeypis og greiddum reikningum heldur mæling áfram um 10% fram yfir mörkin og stöðvast svo þar til nýr mánuður hefst eða pakkinn er uppfærður. 30 daga prufan er ekki takmörkuð. Vefstofa getur bætt við 500.000 flettingum í einu.
Vefstofur og mörg lén
Get ég mælt margar vefsíður með einum reikningi?
Já. Ókeypis og Fyrirtæki innifela 1 vef, Vöxtur 3 og Vefstofa 10. Fleiri vefir bætast við fyrir 990 kr. á mánuði á Fyrirtæki og Vexti, og 1.490 kr. á mánuði á Vefstofu. Vefstofa getur gefið viðskiptavini lesaðgang að einum vef.
Hentar Stats vefstofum?
Vefstofa kostar 19.900 kr. á mánuði án VSK og innifelur 10 vefi, allt í Vexti, aðgang fyrir viðskiptavini, merktar skýrslur, API og forgangsþjónustu. Flettingatakmarkið er 1,5 milljón á mánuði. Aukavefur kostar 1.490 kr. á mánuði.
Get ég bætt fleiri vefjum við Vefstofu?
Já. Vefstofa innifelur 10 vefi. Hver aukavefur kostar 1.490 kr. á mánuði án VSK.
Enn með spurningar?